Orkustofnun hefur á þessu ári veitt einn styrk að upphæð 500.000 kr. vegna rannsókna eða námsverkefna til meistaraprófs (MSc.) á sviði smávirkjana til raforkuframleiðslu. Ætlunin er að veita annan slíkan styrk á árinu og er markmið með styrkveitingunni að stuðla að aðgengilegu efni fyrir þá sem hyggjast nýta landgæði til framleiðslu raforku í byggðum landsins.
(meira…)
Nánar
Fundir og ráðstefnur
Ný stjórn samtakanna
Stefán Bogi Sveinsson, bæjarfulltrúi á Fljótsdalshéraði, var kjörinn formaður Samtaka orkusveitarfélaga á aðalfundi samtakanna sem fram fór í liðinni viku. Stefán Bogi tekur nú við formennskunni af Gunnari Þorgeirssyni, oddvita Grímsnes- og Grafningshrepps.
Á fundinum var einnig samþykkt inntökubeiðni Blönduósbæjar í samtökin og eru aðildarsveitarfélögin þar með orðin 21 talsins.
Samtök orkusveitarfélaga voru stofnuð árið 2011 og er markmið þeirra einkum að standa vörð um hagsmuni aðildars...
Nánar
Aðalfundur SO 2016
Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica miðvikudaginn 21. september kl. 14:30.
Dagskrá aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga.
Skýrsla stjórnar 2014-2016
Ársreikningar 2014 og 2015 og fjárhagsáætlun 2017 og 2018
Starfs- og fjárhagsáætlun samtakanna ásamt ákvörðun um árgjöld og þóknun stjórnar
Lagabreytingar
Kosning formanns stjórnar, annarra stjórnarmanna og varastjórnar til tveggja ára
Kosning tveggja skoðunarmanna til tveggja ára og tve...
Nánar
Orkufundur 2015 – skráning er hafin
Samanburður á orkukostnaði heimila á nokkrum stöðum
Byggðastofnun hefur fengið Orkustofnun til að reikna út kostnað við raforkunotkun og húshitun á sömu fasteigninni á nokkrum þéttbýlisstöðum og nokkrum stöðum í dreifbýli á ársgrundvelli. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 140 m2 að grunnfleti og 350m3. Gjöldin eru reiknuð út samkvæmt gjaldskrá þann 1. apríl 2015.
Við útreikninga þessa er almenn notkun og fastagjald tekið saman annarsvegar og hitunarkostnaður hinsvegar. Sala á rafmagni er á samkeppnismarkaði og er í útreikningum Orkustofn...
Nánar
Raforkukerfi í vanda – opin dagskrá
Yfirskrift opinnar dagskrár aðalfundar Samorku er Raforkukerfi í vanda. Erfið staða flutningskerfis raforku verður þar til umfjöllunar og þær hömlur sem sú staða hefur á þróun atvinnulífs víða um land. Um þessi mál munu fjalla yfirmaður stjórnstöðvar Landsnets, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Landsvirkjunar, bæjarstjóri Fjarðabyggðar og sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar.
Þá munu nýr formaður Samorku sem og iðnaðar- og viðskiptaráðherra ávarpa fundinn, sem haldinn verður á Grand Hótel Reykjavík föst...
Nánar
Auðlindarenta og nærsamfélagið
Í gær, fimmtudaginn 29. janúar, kynnti Hagfræðistofnun Háskóla Íslands nýútkomna skýrslu stofnunarinnar um auðlindarentu og nærsamfélagið. Skýrslan varpar ljósi á umgjörð raforkumála í Noregi og fleiri löndum sem nota vatnsaflsvirkjanir til raforkuvinnslu. Af þeirri kortlagningu má álykta að meta þurfi þjóðhagslegan kostnað og ávinning þess að skilgreina réttindi tengd raforkumálum þannig að sátt ríki um nýtingu auðlindarinnar.
Gunnar Þorgeirsson, formaður Samtaka orkusveitarfélaga, og Hörður...
Nánar
Haustfundur Landsvirkjunar
Þriðjudaginn 25. nóvember sl. var haustfundur Landsvirkjunar haldinn. Á þeim fundi var fjallað um spennandi áskoranir og tækifæri sem Íslendingar standa frammi fyrir í orkuvinnslu og raforkusölu. Fundurinn var mjög áhugaverður og þeir sem hafa áhuga geta nálgast upptökur af fundinum hér: Upptaka af Haustfundi Landsvirkjunar
Formaður og starfsmaður samtakanna mættu á fundinn og komu eftirfarandi fyrirspurn á framfæri.
Fyrirspurn Gunnars Þorgeirssonar á fundinum.
Nánar
Ný stjórn
Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Samtaka orkusveitarfélaga í dag, föstudaginn 10. október. Nýja stjórnin situr í tvö ár eða til ársins 2016. Í nýrri stjórn sitja:
Stjórn 2014-2016
Formaður
Gunnar Þorgeirsson Grímsnes- og Grafningshreppur
Aðalstjórn
Bryndís Gunnlaugsdóttir Grindavíkurbær
Jón Óskar Pétursson Skútustaðahreppur
Unnur Lára Bryde Hafnarfjarðarbær
Stefán Bogi Sveinsson Fljótsdalshérað
Anna Lóa Ólafsdóttir Reykjanesbær
Árni Eiríksson Flóahreppur
Varastjórn
Jón Björ...
Nánar
Aðalfundur samtakanna
Föstudaginn 10. október nk. verður aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga haldinn á Hilton Reykjavík Nordica Hótel.
Nánar