Umsögn um drög að frumvarpi um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati

Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga hefur sent í Samráðsgátt umsögn um drög að frumvarpi um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati, mál S-51/2026. Í umsögninni kemur m.a. fram að afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati hafi verið eitt helsta baráttumál samtakanna frá stofnun þeirra árið 2011.

Stjórnin fagnar frumvarpinu og vonar að unnt verði að samþykkja það frá Alþingi á yfirstandandi þingi. Þannig myndi 15 ára baráttu Samtaka orkusveitarfélaga fyrir réttlæti gagnvart nærsamfélagi orkumannvirkja, sem og 10 ára meðferð í stjórnkerfinu, ljúka.

Í umsögninni segir ennfremur að stjórn samtakanna leggi höfuðáherslu á eftirfarandi atriði og rökstyðja þau með ítarlegum hætti:

  • Að skattprósenta verði 0.7%
  • Að sveitarfélög verði ekki fyrir neikvæðum fjárhagslegum áhrifum
  • Að stóriðja verði felld út úr frumvarpinu
  • Að hvalrekaákvæði hafi ekki neikvæð fjárhagsleg áhrif.

Umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um drög að frumvarpinu.