Útboð verkefna á sviði jarðhita og vatnsaflsvirkjana á vegum Uppbyggingarsjóðs EES í Póllandi

Ný áætlun Uppbyggingarsjóðs EES um endurnýjanlega orku, umhverfis- og loftslagsmál var kynnt á ráðstefnu í Varsjá í Póllandi 3. mars, en eitt af helstu markmiðum áætlunarinnar er að að draga úr losun á gróðurhúsalofttegundum í viðkomandi löndum. 

Að þessu sinni eru tvö útboð auglýst annars vegar varðandi jarðhita og hins vegar litlar vatnsaflsvirkjanir.

Stuðningur samkvæmt áætluninni beinist að áherslum og verkefnum sem miða að því að bæta loftgæði og umhverfi, þróa hitaveitu- og raforkukerfi og bæta orkunýtni með endurnýjanlegri orku. Áhersla verður lögð á að auka framleiðslu með endurnýjanlegum orkugjöfum, s.s. jarðvarma og litlum vatnsaflsvirkjunum, og unnið verður að mótvægisaðgerðum vegna loftslagsbreytinga og verndun vistkerfa.

Áætlunin felur í sér stuðning á þremur meginsviðum:

  •  Endurnýjanleg orka, orkunýtni, orkuöryggi
  •  Mótvægisaðgerðir og aðlögun vegna loftslagsbreytinga
  • Verkefni er varða umhverfi og vistkerfi
  • Einnig verður áhersla á tilraunaverkefni er varða hringhagkerfi og notkun lífmassa í orkumálum.

Jarðhiti

Meginmarkmið útboðsins er að fjármagna verkefni á sviði endurnýjanlegrar orku, orkunýtni og orkuöryggis. Verkefnin eiga að auka notkun endurnýjanlegra orkugjafa með byggingu kerfa fyrir „djúpan“ jarðhita á stöðum þar sem staðfest hefur verið tilvist og notkun jarðhita til upphitunar húsa m.a. með borun á rannsóknarholum. Framkvæmd verkefnanna eiga að leiða til minni losunar á CO2 og auka hagkvæmni. Nánari upplýsingar um útboðið má sjá hér og hér.

Litlar vatnsaflsvirkjanir

Meginmarkmið útboðsins sem ætlað er að fjármagna verkefni á sviði endurnýjanlegrar orku, orkunýtni og orkuöryggis, er að auka skilvirkni orkuframleiðslu frá endurnýjanlegum orkugjöfum og draga úr hugsanlegum skaðlegum umhverfisáhrifum núverandi lítilla vatnsaflsvirkjanir (allt að 2MW) með endurnýjun.

Framkvæmd verkefnisins á að leiða til minni losunar á CO2 og auka hagkvæmni. Verkefninu er einnig ætlað að auka fræðslustarfsemi sem miðar að því að þjálfa fagfólk á sviði vatnsaflsvirkjana.

Nánari upplýsingar um útboðið má sjá hér og hér

Áður hafa verið auglýst átta útboð verkefna á sviði loftslags-, umhverfis- og orkumála

Nánari upplýsingar um þau átta útboð sem áður hafa verið kynnt á ráðstefnu í Póllandi 3. mars sl. og varða sérstaklega loftslags- og umhverfis- og orkumál má sjá hér. Einnig hefur verið framlengdur frestur til að skila inn tilboðum í þau verkefni, sjá nánar hér.

Einnig má sjá hér nánari upplýsingar um ráðstefnu um þessi verkefni sem haldin var í Varsjá í Póllandi 3. mars sl,

Leiðarkerfi færslu

Previous Post:Styrkveitingar Orkusjóðs á árinu 2020