Orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið að auglýstir verðir styrkir til orkuskipta að upphæð 900 milljónir kr. af þeim fjárveitingum sem veittar eru til loftslags- og orkumála í ár.
Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum og orkuskiptum og eru styrkflokkar í samræmi við stefnu stjórnvalda um að styðja við orkuskipti á landsvísu. Áhersla er lögð á vistvæna orkunýtingu, sem og að styðja við orkuskipti í samgöngum um land allt. Styrkirnir sem auglýstir eru nú eru almennir styrkir vegna orkuskipta og verða styrkir vegna þungaflutninga og bílaleigubíla auglýstir innan skamms.
Styrkir til verkefna:
Framleiðsla endurnýjanlegs eldsneytis (raf- eða lífeldsneytis)
- T.a.m. fyrir siglingar eða flug
Innviðir fyrir orkuskipti
- Samgöngur á landi
o Hraðhleðslustöðvar (150kW+) á fjölförnustu (flutnings)leiðum landsins
- Samgöngur á sjó eða vötnum
o Hleðsluinnviðir í höfnum
Tækjabúnaður sem nýtir endurnýjanlega orku í stað olíu
- T.a.m. í framleiðslu, flutningum eða siglingum
- Varaafl
Umsóknarfrestur er til 19. apríl.
Orkusjóði hefur verið falin umsjón með auglýsingu og umsýslu styrkjanna. Umsóknir skulu sendar gegnum þjónustugátt Orkustofnunar: gattin.os.is.
Nánari upplýsingar:
Staða og áskoranir í orkumálum