Orkustofnun hefur veitt Landsvirkjun virkjunarleyfi til vindorkuframleiðslu í Búrfellslundi

Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga fjallaði um um virkjanaleyfið á stjórnarfundi sínum þann 19. ágúst 2024 og bókaði eftirfarandi:

Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga vilja að gefnu tilefni minna á bókun samtakanna í fundargerð dagsett 17. febrúar 2023 þar sem stjórn bókaði:

„Ríkisstjórn Íslands setti í stjórnarsáttmála sinn aðgerðir um orkuskipti og útfösun jarðefnaeldsneytis, þar sem grunnur er lagður að fullum orkuskiptum og að þeim verði náð eigi síðar en árið 2040. Því er mikilvægt að ríkið meti stöðu á framleiðslu á raforku á Íslandi, áætli þörf til frekari framleiðslu og ákveði með hvaða móti og hvar skuli afla þeirrar orku út frá ýmsum þáttum svo sem umhverfislegum, samfélagslegum og efnahagslegum með Rammaáætlun eða öðru sambærilegu ferli. Endurskoða þarf hverjar heimildir sveitarfélaga eigi að vera til gjaldtöku og eða álagningar gjalda og meta hvort leitast eigi við aðrar heimildir svo sem til skattaafslátta eða samfélagssjóða eða annað sem hefur efnahagsleg áhrif fyrir sveitarfélög, ágóða landeigenda, bætur til fasteignaeigenda í grennd vegna virðisminnkunar, tryggingar vegna umhverfisskaða á framkvæmdar- og rekstrartíma og vegna niðurrifs að rekstrartíma liðnum og fleira. Arður af nýtingu náttúruauðlinda til raforkuframleiðslu þarf að skiptast með sanngjörnum hætti milli þeirra sem eru hagaðilar við orkuvinnslu. Tryggja þarf með lögum að nærumhverfið þar sem orkan á uppsprettu sína, njóti efnahagslegs ávinnings sem mun styrkja byggð þar sem orkan verður til um allt land. Það er sanngirnismál að orkuvinnslan skili sambærilegum tekjum í nærsamfélagið eins og öll önnur atvinnustarfsemi gerir. Einnig þarf að breyta raforkulögum til að tryggja að dreifikostnaður raforku sé sá sami í dreifbýli og þéttbýli. Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga hvetur öll sveitarfélög á landsbyggðinni sem hafa orkumannvirki í nærumhverfi sínu, eða eru með hugsanleg virkjanaáform í farvatninu til þess að staldra við í skipulagsmálum virkjana á meðan sanngjörn skipting auðlindarinnar verður fest í lög“.

Þann 23. febrúar sl. kom stjórn saman og fékk kynningu frá formanni starfshóp um skattlagningu orkuvinnslu og var í kjölfarið bókað eftirfarandi: „Stjórn þakkar Hilmari Gunnlaugssyni formanni starfshóps um skattlagningu orkuvinnslu fyrir góða kynningu. Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga tekur jákvætt í þróun mála og fagnar því að fram séu komnar tillögur um breytingar á skattlagningu orkuvinnslu og vonar að með því sé kominn skriður í málið. Áður hafa verið skipaðir tveir aðrir starfshópar um þetta mál en hvorugur þeirra komst að niðurstöðu. Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga vill lýsa mikilli ánægju yfir þeirri vinnu sem unnin hefur verið og líst nokkuð vel á framkomnar tillögur. Stjórnin er þó ekki sannfærð um ágæti þeirrar tillögu að blanda Jöfnunarsjóði inn í vinnuna en þar sem enn er þó nokkrum spurningum ósvarað í tengslum við tillögurnar þá lítur stjórnin svo á að þetta sé verkefni í vinnslu og tími muni gefast til nánara samtals. Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga hlakkar til að sjá tillögur um endanlegar útfærslur“.

Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga vill minna á að allir hagaðilar eru sammála um að nærsamfélag orkuvinnslu á ekki og getur ekki fórnað sinni náttúru og auðlindum án þess að njóta sanngjarns ávinnings af orkuframleiðslunni. Stjórn samtaka orkusveitarfélaga hvetur því ríkisstjórn til þess að flýta vinnunni þannig að bæði stefnu og skattamál allra orkuvinnslu verði skýr sem allra fyrst.