Málstofa um orkuskipti og sveitarfélög

Íslensk nýorka, Eimur, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra og Vestfjarðastofa standa fyrir sameiginlegum viðburði þann 29. ágúst n.k. kl. 13:00 – 15:00

Viðburðurinn verður í beinu streymi frá Hótel KEA á Akureyri og ber yfirskriftina: Orkuskipti og sveitarfélög. Viðburðurinn markar upphafið að þriggja ára verkefni sem miðar að því að efla getu sveitarfélaga og samfélaga í dreifðum byggðum Evrópu, til að takast á við orkuskipti.

Áhugasamir geta skráð sig á viðburðinn og valið um að mæta í eigin persónu eða sitja fundinn í streymi (Teams).

Dagskrá:

Hilmar Gunnlaugsson, Sókn Lögmannsstofa
– Tekjumöguleikar sveitarfélaga af orkumannvirkjum

Alexis Chatzimpiros, Samsø Energiakademi
– Reynsla af uppbyggingu vindorku og öðrum orkugjöfum á Samsö

Anna Margrét Kornelíusdóttir, Íslensk Nýorka
– Rural Europe for the Clean Energy Transition (RECET verkefnið) – Styrkt af LIFE-áætlun ESB

Fundarstjóri er Ottó Elíasson, rannsókna- og þróunarstjóri hjá Eimi

Boðið verður upp á hressingu eftir fundinn.
Öll velkomin!