Þann 4. október 2013 verður orkufundur Samtaka orkusveitarfélaga haldinn. Fundurinn verður haldinn á Hilton í tengslum við fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga en fundurinn er hugsaður sem almennur kynningar- og fræðslufundur fyrir starfsmenn, stjórnendur og bæjarfulltrúa aðildarsveitarfélaga. Orkufundurinn er þó opinn öllum.
Dagskrá Orkufundar 2013
Birt með fyrirvara um breytingar
13:00 | Setning Stefán Bogi Sveinsson, formaður SO, gerir grein fyrir starfi samtakanna og setur ráðstefnuna |
13:20 | Ávarp ráðherra Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ávarpar fundargesti |
13:40 | Undanþáguákvæði laga um skráningu og mat fasteigna Skarphéðinn Pétursson hrl. hjá Veritas lögmönnum |
14:00 | Um skatttekjur nærsamfélaga í raforkuvinnslu í Noregi Ketill Sigurjónsson, sérfræðingur á sviði orkumála |
14:20 | Úttekt Deloitte á mögulegum skatttekjum af orkuframleiðslu á Íslandi Hjördís Gunnarsdóttir, lögfræðingur hjá Deloitte |
14:40 | Umræður og spurningar |
15:00 | Fundi slitið |
Fundarstjóri: Dagbjört Jónsdóttir, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar og stjórnarmaður í SO