Á stjórnarfundi Samtaka orkusveitarfélaga 8. apríl sl. var samþykkt að stjórnin skildi fara í fræðsluferð á Austurland dagana 2-3 maí. Jónínu Brynjólfsdóttur, oddvita Múlaþings og stjórnarmanni í Samtökum orkusveitarfélaga var falið að skipuleggja ferðina.
Flogið var til Egilsstaða seinni partinn á fimmtudeginum 2. maí. Haldinn var stjórnarfundur í húsakynnum Hitaveitu Egilsstaða og Fella (HEF).
Daginn eftir var farið að skoða Fljótsdalsvirkjun. Sindri Óskarsson stöðvarstjóri tók á móti stjórnarmönnum og kynnti fyrir þeim starfsemi virkjunarinnar.
Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskiptamála hjá Landsvirkjun og Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri fluttu síðan kynningu á fyrirhuguðum virkjanakostum Landsvirkjunar.
Að lokinni kynningu þeirra flutti Finnur Beck framkvæmdarstjóri Samorku erindi um starfsemi Samorku.
Í kjölfarið hófust svo fróðlegar umræður um virkjunarmál meðal fundargesta.
Eftir hádegi var svo farið aftur til Egilsstaða og komið við í húskynnum Hitaveitu Egilsstaða og Fella. Þar flutti Aðalsteinn Þórhallsson framkvæmdastjóri erindi um starfsemi veitunnar. Að því loknu var síðan flogið til Reykjavíkur.