Föstudaginn 16. nóvember sl. var haldin ráðstefna undir yfirskriftinni „Hver er sanngjörn skipting arðs af orkuauðlindum“. Á fundinn mættu nokkrir tugir manna frá sveitarfélögum á Íslandi í Noregi og Svíþjóð. Öll erindi á fundinum voru tekin upp og eru þau aðgengileg á vefsíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga hjá Vimeo.com.
Tenglar eru inná erindin í dagskránni hér að neðan.
Dagskrá
09:00 | Setning ráðstefnunnar Stefán Bogi Sveinsson, formaður Samtaka orkusveitarfélaga |
09:10 | Ávarp atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra atvinnuvega og nýsköpunar |
09:30 | Að verja verðmæti náttúruauðlinda í þágu nærsamfélagsins – Norska leiðin Caroline Lund, LVK – Samtök norskra vatnsaflssveitarfélaga |
10:15 | K a f f i h l é |
10:35 | Þrjátíu ára reynsla Stein Erik Stinessen, LVK – Samtök norskra vatnsaflssveitarfélaga |
11:25 | Heilstæð auðlindastefna – Þriðja stoðin Arnar Guðmundsson, formaður auðlindastefnunefndar |
12:00 | H á d e g i s h l é |
13:00 | Arður af orkuvinnslu – Auðlindir fyrir alla Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar |
13:30 | Rafmagn frá vatni og vindi – réttur nærsamfélagsins til hlutdeildar í arði Tomas Palmgren, Samtök sænskra vatnsaflssveitarfélaga |
14:00 | Hvers vegna eiga íslensk sveitarfélög að taka þátt í jarðvarmaklasanum? Friðfinnur Hermannsson, Íslenska jarðvarmaklasanum |
14:30 | Að skipta kökunni – hverjir eiga að njóta arðs af orkuauðlindum? Stefán Bogi Sveinsson, formaður Samtaka orkusveitarfélaga |
15:00 | K a f f i h l é |
15:30 | Pallborð, umræður og spurningar |
17:00 | Ráðstefnulok |