Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga fór fram 29. apríl 2026 í gegnum fjarfundabúnað. Á fundinum voru samþykktar breytingar á samþykktum samtakanna sem m.a. snúa að því að skerpa betur á ákvæðum um störf kjörnefndar og rýmka heimildir til að halda aðalfund fyrr á því ári er sveitarstjórnarkosningar fara fram. Einnig kom fram breytingartillaga um að fjölga stjórnarmönnum úr fimm í sjö.
Allar þær tillögur sem lágu fyrir fundinum voru samþykktar og var í framhaldinu kosið um kjörnefnd sem eftirtaldir aðilar skipa:
Aðalmenn:
Ragnar Sigurðsson, Fjarðabyggð – formaður
Arnór Benónýsson, Þingeyjarsveit og
Ása Valdís Árnadóttir, Grímsnes- og Grafningshreppi
Varamenn:
Eyrún Fríða Árnadóttir, Sveitarfélagið Hornafjörður
Eggert Valur Guðmundsson, Rangárþing ytra
Jóhanna Hreinsdóttir, Kjósarhreppur