Umsögn um áform um skattlagningu orkumannvirkja

Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga hefur skilað inn umsögn um áform um endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja) sem finna má í samráðsgátt stjórnvalda.

Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga (SO) fagnar framkomnum áformum en þetta hefur verið eitt elsta baráttumál samtakanna frá stofnun þeirra í nóvember 2011. Þ.e. að felld verði úr gildi undanþágur rafveitna frá fasteignamati og þá um leið fasteignaskatti. Er þetta bæði í samræmi við tilgang samtakanna sem og stefnumörkun og starfsáætlun til ársins 2026.

Í umsögn stjórnar voru nokkrar athugasemdir og ábendingar til innviðaráðuneytisins og áskilur stjórn sér rétt til að koma með frekari athugasemdir á síðari stigum þegar nánari útlistun hefur verið birt. Í umsögninni vakti stjórn einnig athygli á því að ekki er ætlunin að afnema undanþágur á fasteignamati og um leið fasteignasköttum á orkuflutningsmannvirki.

Í skýrslu um Skattlagningu orkuvinnslu dags. 24. janúar 2024, bls. 6, segir „En orkuflutningsmannvirki leiða eða geta leitt til lækkunar á fasteignamati þess landsvæðis sem þau liggja um og þannig beinlínis
lækkað fasteignaskattstekjur sveitarfélags án sérstakra bóta. Erlendis þekkist að lagður sé fasteignaskattur á mannvirki af þessum toga, t.d. í Noregi.“

Stjórn SO leggur mikla áherslu á að flutningsmannvirki greiði einnig fasteignaskatta til nærsamfélagsins. Það hefur verið í umræðunni í langan tíma mikilvægi þess að styrkja orkuflutningsmannvirki og hefur það mætt tregðu víðsvegar að setja upp slík mannvirki. Það, að nærsamfélagið fái fjárhagslegan hag af því að orkuflutningsmannvirki séu sett upp, er eitt af þeim atriðum er getur liðkað fyrir nauðsynlegri uppbyggingu orkuflutningsmannvirkja í landinu.

Það er von stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga að tekið verði tillit til framangreindra ábendinga við frekari vinnslu frumvarpsins og lýsir stjórn SO sig reiðubúin til frekara samráðs um málið.

Hér má nálgast umsögn stjórnar SO.