Ársfundur Orkustofnunar verður haldinn í Norðurljósum í Hörpu föstudaginn 9. júní á milli kl. 9 til 11:30. Húsið opnar kl: 8:30 og boðið er upp á morgunhressingu.
Samfélag okkar stendur á tímamótum í orkumálum með innleiðingu orkuskipta og mikilvægt er að það sé gert af alúð og í þágu samfélagsins. Orkustofnun leggur ríka áherslu á að svo sé gert og hvetur alla sem láta sig málin varða að koma til fundarins.
Á ársfundinum verður farið yfir starfsemina á árinu 2022 og varpað ljósi á helstu áfanga er varða orkumálin, sem og önnur verkefni sem stofnunin sinnir á sviði nýtingu vatns og jarðefna á þjóðlendum og á hafsbotni. Enn fremur verða í forgrunni verkefni og aðgerðir sem hafa verið innleidd til að efla skilvirkni og gagnsæi starfseminnar. Á meðal þess sem fjallað verður um eru leyndardómar leyfisveitinga og töfrar varmadælna en gleðigjafinn Sólmundur Hólm mun sjá um að draga fram spaugilegri hliðar orkumála.
Dagskrá
Ávarp umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson
Ávarp orkumálastjóra Halla Hrund Logadóttir frá Orkustofnun
Skilvirkni stjórnsýslu á tímum orkuskipta og nýsköpunar
Leyndardómar leyfisveitinga Marta Rós Karlsdóttir, Ph.D. sviðsstjóri sjálfbærrar auðlindanýtingar
Örerindi
- Skilvirkari stjórnsýsla – eingreiðslur vegna umhverfisvænnar orkuöflunar Eyrún G. Káradóttir, verkefnastjóri Orkuseturs
- Áður en lengra er haldið, mikilvægi framtíðarsýnar í stjórnsýslu Sigurjón Njarðarson, lögfræðingur auðlindanýtingar og Tinna Jónsdóttir, verkefnastjóri auðlindaeftirlits
Raforkuöryggi – markaður, tækifæri og áskoranir
Raforkuöryggi í þágu almennings – Hanna Björg Konráðsdóttir, deildarstjóri raforkueftirlits Orkustofnunar
Örerindi
- Orkuhermirinn: Hvernig metum við raforkuöryggi á Íslandi Dagur Helgason, sérfræðingur í greiningu orkumarkaða – Greining á orkulíkaninu
- Gögn og greiningar – vannýtta auðlindin Björn Arnar Hauksson, deildarstjóri greininga og gagnavinnslu
- Orkusjóður, tenging á milli fortíðar og framtíðar Eyrún G. Káradóttir, verkefnastjóri Orkuseturs
Húshitun í nútíð og framtíð
Aukin notkun – betri nýting Heimir Tryggvason, sérfræðingur hitaveita og bein nýting jarðhita
Varmadælur- töfrarnir í orkunýtni Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðsstjóri loftslagsmála, orkuskipta og nýsköpunar
Örerindi
- Alþjóðleg vitundarvakning á nýtingu jarðhita Hjalti Páll Ingólfsson,framkvæmdastjóri GEORG – rannsóknaklasa í jarðhita
Lokaorð Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, fv. Forseti Íslands
Fundarstjórn Þorsteinn Másson, framkvæmdastjóri Bláma