Kynningafundir Samtaka orkusveitarfélaga

Í næstu viku mun Stefán Bogi Sveinsson, formaður Samtaka orkusveitarfélaga, ferðast um landið og halda fundi um málefni samtakanna. Á fundunum mun hann fara yfir markmið og tilgang samtakanna sem og kynna stefnumörkun þeirra. Öllum kjörnum fulltrúum sem og framkvæmdastjórum sveitarfélaga er boðið að mæta á kynningarfundina til að kynna sér starfsemina.

Fundirnir verða á eftirtöldum stöðum:

  1. Hafnarfirði, 16. september kl. 11:00, í fundarsalnum Krosseyri við Linnetstíg 3 (salurinn er á 4. hæð, inngangur v. hliðina á Íslandsbanka.
  2. Flóahreppi, 16. september kl. 16:00, í Félagsheimilinu Þingborg.
  3. Þingeyjarsveit, 18. september 2014 kl. 11:00, í Félagsheimilinu Breiðumýri.
  4. Fljótsdalshérað, 23. september 2014 kl. 15:00, á bæjarskrifstofu Fljótsdalshéraðs.