Aðalfundur 2018

Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica, miðvikudaginn 10. október, kl. 15:00.

Dagskrá

1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningar lagðir fram
3. Starfs- og fjárhagsáætlun lögð fram ásamt ákvörðun um árgjöld og þóknun til stjórnar
4. Lagabreytingar
5. Kosning formanns stjórnar, annarra stjórnarmanna og varastjórnar til tveggja ára
6. Kosning tveggja skoðunarmanna og tveggja til vara til tveggja ára
7. Aðildargjöld
8. Önnur mál

Dagskráin er kynnt með fyrirvara um breytingar.

Vakin er athygli á því að einn fulltrúi þarf í það minnsta að mæta frá hverju aðildarsveitarfélagi. Einnig eru aðildarsveitarfélög vinsamlegast beðin um að skrá alla fulltrúa ef fleiri en einn mæta fyrir hönd viðkomandi sveitarfélags.

Þeir aðilar sem vilja gefa kost á sér til stjórnarsetu í samtökunum eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Stefán Boga Sveinsson, formann samtakanna, stefanbogi@egilsstadir.is.